Gestabók
Skrifa í Gestabók
Gestir:
námskeið í góðu skapi
sæl Edda fyrir tæpum þremur árum komstu í leikskólann minn og hélst námskeið fyrir okkur kennarana um hvernig við getum alltaf verið í góðu skapi. Það var frábært og skemmtilegt og nú langar mig að panta annað slíkt námskeið hjá þér. Viltu hafa samband við mig svo ég geti fengið upplýsingar hjá þér varðandi námskeiðið og hvort þetta gangi:) kv. Anna Helga anna.helga.sigfusdottir@reykjavik.is
Anna Helga Sigfúsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 4. okt. 2011
Edda þú ert frábær!
Ég er flugfreyja sem var svo heppin að fá að sitja á námskeiði/fyrirlestri hjá þér á vegum Icelandair fyrir ári síðan. Síðan það var hef ég ítrekað fyllst aðdáun yfir þér, ekki sem leikkonu (þótt frábær sért) heldur sem manneskju. Þegar ég kemst á þinn aldur (eftir kannski hvað 25-30 ár) þá langar mig að vera eins og þú (já og vonandi fyrr)... búa yfir þinni útgeislun. Þú ert svo sátt í eigin skinni og það skín langar leiðir. Þú er kannski ekki nefnd í sömu andrá og fegurðardrottningar þinnar kynslóðar- en útlitið er fallvalt en persónuleiki og útgeislun halda sér. Þú er kona sem ert til fyrirmyndar, ég horfi til þín ég mynda mér framtíðarsýn um mína persónu. Takk fyrir að vera til, takk fyrir að vera þú.
Þórdís (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 14. maí 2009
Gleðidans í Tjarnarlandi
Sæl Edda. Bestu kveðjur til þín frá starfsmannahópnum í leikskólanum Tjarnarlandi á Egilsstöðum sem dansar villtan gleðidans í hádeginu að hætti Eddu Björgvins. Dásamleg leið til að hrista af sér kreppuhnútinn og fylla líkamann orku á ný. Nemendur dansa stundum með okkur og þá eykst kátínan og hlátrasköllin til muna svo glymur um skólann. Takk fyrir okkur. Bryndís Skúla
Bryndís Skúladóttir/leikskólinn Tjarnarland (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 30. okt. 2008
Námskeið maður lifandi
Sæl Edda! Kærar þakkir fyrir frábært námskeið í dag. Eg er kennari og ætla að nýta mér það sem ég lærði hjá þér í kennslunni. Ekki veitir af að bæta hlátri inn í skólastarfið. Hann bæði hressir og kætir. Við krakkarnir eigum eftir að dansa,syngja og hlæja saman;) Enn og aftur kærar þakkir fyrir mig! Kær kveðja! Kristin J. Hirst
Kristin (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 28. okt. 2008
Flottir ávextir...
Ástin ein ber rauða grein. Já, það eru orð að sönnu.
Ingibjörg Sigurbjörnsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 27. sept. 2008
Sammála
Elsku nafna mín. mikið er ég sammála með besta áramótaskaupið. gott að geta lesið þig af og til, það er svona næstum því eins og smá heimsókn. hafið það sem allra best. Edda V. Guðmundsdóttir
Edda V. Guðmundsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 11. júlí 2008
Kærar þakkir
Kærar þakkir fyrir bloggvináttu! Er að reyna að sannfæra þá sem ég "ligg á glugganum hjá" um bloggvináttu, miklu þægilegra að hafa ykkur öll á kantinum... Kveðja úr sveitinni Krissa
Kristborg Bóel Steindórsdóttir, mið. 25. júní 2008
barasta söknuður
Heil og sæl vinkona.. er farin að sakna þess að hitta þig yfir einum kaffi og finna ilminn af lífinu í smá stund :-)... kv, Bergur kiljan.blog.is
Bergur Ólafsson, fim. 22. maí 2008
Málverk
Velkomin að líta í heimsókn.. ;)http://malverk.blogcentral.is/ Með kveðju, Lísa. ( hef stundum litið hér inn )
Lísa Þorsteinsd (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 21. maí 2008
Kveðja!
Sæl Edda mín, og takk fyrir að koma í blogvinahópinn minn, svona bara til gamans, þá er ég systir Guðmundu Guðrúnar, sem hefur verið þér innan handar, við heimilið, hún skilar kærri kveðju!
Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir, mán. 19. maí 2008
Getur þú aðstoðað mig kæra Edda?
Sæl Edda, ég var að lesa skemmtilega bloggið þitt og sé að þú ert svo gasalega ferðavön þarna í Kaliforníunni. Ég var að lesa bloggfærsluna þína þar sem þú talar um hvernig er hægt að komast til Kaliforníu á ódýran hátt í gegnum Minneappolis. Viltu vera svo væn að senda mér upplýsingar um hvaða ferðamáti er ódýrastur þar sem ég er að plana ferð fyrir 5 manna fjölskyldu til USA næsta sumar. Emailið mitt er: sonata03@visir.is Með fyrirfram þökk, Dísa
Dísa (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 6. apr. 2008
Brautargengiskona
Sæl Edda Takk fyrir skemmtilega stundir á Brautargengisnámskeiðinu forðum daga. Rakst á síðuna þína og mátti til með að kasta á þig kveðja. Hlakka til að heyra meira um leyndarmálið í viðskiptaáætluninni. Er það kannski þetta af námskeiðinu? Þuríður Helga (sú sem var með eldhúskassann :) )
Helguráð, fim. 6. mars 2008
Áhugaleikari :)
Sæl Edda og takk fyrir síðast, sem var reyndar fyrir 11 árum síðan á námskeiði hjá ykkur Gísla. Ég á ykkur hjónum margt að þakka fyrir þetta frábæra námskeið og bý enn að því að hafa lært framsetningu hjá ykkur. Ég er í Markaðshagfæði námi hér Danmörku og einn partur af því er Global Communication og minn bara er ekki bara efstur í bekknum heldur laaaang efstur.... ástæðan, jú Edda og Gísli tróðu í mig svo góðum grunni að ég er gersamlega brillera fyrir framan fólk í opnum ræðuhöldum. Takk takk. Jac Gunnlaugur Norðquist (Bói)
Jac Norðquist, fim. 21. feb. 2008
sæl Edda Björgvinsdóttir
síðan þínn er flott áttir það að vera
Gunnlaugur Halldór Halldórsson, mán. 18. feb. 2008
Sæl Edda Björgvinsdóttir
TAKK fyrir að að vera bloggvinur og velkominn á mína síðu síða er flott. Guð blessi þig kveðja Gulli Dóri
Gunnlaugur Halldór Halldórsson, mán. 18. feb. 2008
Til lukku og takk fyrir daginn
Elsku Edda - vil byrja á að óska þér hjartanlega til hamingju með litla prinsinn í fjölskyldunni :) Svo eru það þakkir til þín fyrir frábært innlegg í daginn í dag (Icelandair á Hilton). Alveg sama þó úti blási kaldir vindar og vetur - maður gleymir því og verður glaður í nærveru þinni. Geymi þennan dag ofarlega í minningabrunninum :) Hafðu það sem allra best mín kæra og stórt knús.
Gúnna, þri. 5. feb. 2008
Sæl og blessuð fröken
heil og sæl.. hvað segir þú gott kæra vina, maður hefur bara ekkert séð af þér síðan úr rúntinum forðum daga í vestmannaeyjabæ... það var nú ekki leiðinlegur bíltúr.. ha já nei það var það sko ekki, en hvernig gengur í henni Ameríku??? já ég tók mig einmitt sjálfur til og flutti niður að ströndum afríku, nánartiltekið til Gran Canaria og starfa hér sem fararstjori, hætti á herjólfi og fór að fljúga líka, starfa við það hálft árið og´bý svo hér hinn helminginn, how good is that!!! that's so nice, sunny sunny all days.. en bið að heilsa honum Róbert, segðu að strákurinn úr herjólfi biðji svaka vel að heilsa stráknum sem fékk að gista í kojunni sinni.... hehehehe take care...kveðja Palli úr eyjum
Páll Magnús Guðjónsson, mán. 7. jan. 2008
GLEÐILEG JÓL
gleðileg jól Elskun Edda og fjölskylda.... Við fengum yndislega jólagjöf.....við fengum að vera samann í Lindarbænum um jólin og hefur það verið dýrlegt....Svona jólagjafir eru náttúrulega bara kraftaverk.....Sýkinginn er í rénun og ég fæ að hefja nýja meðferð eftir áramótinn....ég ætla sko ekki að gefa árar í bát heldur berjast eins og íslensk valkyrja... Viljum senda ykkur öll okkar knús og kröml... hafið gleðileg jól... kveðjur úr jólasnjónum í LINDARBÆNUM.....
Sigga sig (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 28. des. 2007
Gleðileg jól
Elsku Edda. Guð gefi þér og þínum gleðileg jól og farsæld á komandi ári.
Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir, fös. 21. des. 2007
... ein voða vitlaus...
Ég var loksins að átta mig á að opna þessa gestabók ... alltaf lærir maður eitthvað nýtt. Takk fyrir þetta sem þið rituðuð í gestabókina mína kæru blogg vinir mínir!
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir, þri. 6. nóv. 2007
Allt í leyni og vinkonan :)
Sæl Edda, þú veist væntanleg um hvað ég er að tala í Titlinum þegar þú hefur lesið tölvupóstinn sem ég sendi þér ég hlakka til að heyra frá þér.Kveðja Lára Jóna
Lára Jóna Sigurðardóttir, mán. 5. nóv. 2007
Sæl frú Fyndin
Mér væri það mikill heiður ef þú gerðist ú bloggvinur minn því þú ert mín uppáhaldsleikona og er bara skemmtileg í alla staði. Kveðja, Íris
Íris Ásdísardóttir, fös. 7. sept. 2007
úps :(
skilaboðin mín bara 2x. Hélt að fyrri færslan hefði ekki komin inn svo maður gerði bara aðra:) og svo færðu hérna þá 3. ;)
Bjarney Hallgrímsdóttir, mið. 8. ágú. 2007
Heyjó...
gaman að sjá þig hérna, á nú örugglega eftir að lesa bloggið þitt:) en segi eins og Anna, það var voða gaman að vera með þér í Berlín árið 2005, frábær ferð...
Bjarney Hallgrímsdóttir, mið. 8. ágú. 2007
Heyjó...
Sæl Edda, gaman að sjá þig í bloggheimum:) segi eins og Anna, það var mjög fínt að hafa þig í Berlín en þar vorum við saman 2005, frábær ferð í alla staði
Bjarney Hallgrímsdóttir, mið. 8. ágú. 2007
Frá aðdáanda
Takk fyrir að gerast bloggvinur minn. Þú ert alltaf svo skemmtileg - alveg fyndnust í heimi.
Guðrún Markúsdóttir, fim. 5. júlí 2007
Hæ hæ
Gaman að sjá þig hér. En var líka voða gaman að horfa á þig í París :)
Anna Einarsdóttir, þri. 19. júní 2007