San Diego

Ég má ekki bregða mér í smá skrepp til Íslands þá gjósa upp óstöðvandi eldar þarna í San Diego!!!

Ég verð að segja að mér líður hálf ónotalega vitandi af unglingnum mínum og mömmu og hinu fólkinu mínu þarna úti núna. Mamma segir að himininn sé grár af ösku og hún þarf stanslaust að vera að sópa ösku af garðhúsgögnunum. Ég er búin að reyna að nota hugarorkuna til að senda íslensku rigninguna út til San Diego. Óska eftir liðsauka ... Einn, tveir og.... allir anda djúpt - loka augunum og ímynda sér rigningarskýin feykjast til Kaliforniu...

Takk fyrir hjálpina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband