ADHD, Attention Deficit Hyperactivity Disorder,

Ungur piltur í fjölskyldunni greindist með ADHD fyrir allnokkru síðan. Af þeim 28 dögum sem hann hefði átt að sitja á skólabekk þetta haustið hefur hann einungis varið 10 dögum í skólanum. Af hverju? Jú - hann var rekinn heim hina dagana - fyrir truflandi hegðun! í augum skólans er þetta sem sagt hegðunarvandamál! Er þetta færni í að takast á við barn sem gengur ekki heilt til skógar - ég bara spyr? Ef hann væri flogaveikur eða í hjólastól væri gerð sú krafa til skólans að hann fengi aðhlynningu og aðstoð við hæfi. Hans sjúkdómur lýsir sér hinsvegar í afar truflandi hegðun - á köflum - og viðbrögð kennara og skólastjóra eru sem sagt þessi, að reka drenginn heim! Af því hann er svo "pirrandi"!

Ég ætla ekki að tíunda hér þær hremmingar og einelti sem þessi piltur hefur upplifað og skammarlega hegðun vanhæfra ábyrgðaraðila innan veggja skólans - þá missi ég mig og fer að eiga við hegðunarvandamál að stríða. Ég læt nægja að monta mig aðeins vegna þess að ég fékk svo ljómandi háa einkunn í Skólastjórnunarkúrsinum á Bifröst, ég var jafn há Friðbjörgu vinkonu minni, sem er þaulreyndur kennari og skólamanneskja til margra ára ( ég má til með að monta mig aðeins). Ég er að velta fyrir mér hvort ég eigi ekki að taka að mér grunnskóla landsins og nota námskeiðið mitt í skólastjórnun og að auki fyrirlesturinn minn um "Jákvæðni, húmor og hlýlegt viðmót" og endurskipuleggja þetta skólakerfi aðeins????

Ég ætla aðeins að velta þessu fyrir mér....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Garún

Algerlega sammála Edda.  Skólakerfið okkar er mjög skrítið á köflum, það er einhvern veginn svo mikið rollur í réttunum.  Ég veit að við höfum kannski ekki mannafla eða aðstoðu til að díla við persónur í staðinn fyrir hóp krakka, en eigum við þá ekki að vinna úr því.  Mér finnst gífurlegt óréttlæti að það séu krakkar þarna úti sem eru að fara á mis við þjónustu vegna þess að fólk hefur ekki tíma, né aðstoðu við að veita þeim menntun.   Edda, smá hugmynd.  Hvernig væri að við stofnuðum skóla, svona eins og Hjallastefnan er með, nema þessi skóli er fyrir sérstaka krakka sem þurfa aðeins meira heldur en að hlaupa í fimm mínútur í frímínutum á klukkutíma fresti.  

Garún, 3.10.2007 kl. 08:39

2 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Já, það vantar sannarlega góðar útlausnir í skólum landsins, sem hjálpa börnum sem þjást af ofvirkni. Lausnir sem virka, hjálpa þeim að funkera, án lyfja, og hjálpa þeim félagslega. Lausnir sem eru skemmtilegar og sérsniðnar þeim sem þurfa á að halda. Kannski ert þú manneskjan sem getur fundið það?

Sem móðir drengs sem þjáist af þessum kvilla, og með fjölbreytta greiningu. Drengs sem hefur líka þurft að líða einelti, honum kennt um allt, þunglyndi af völdum þessa og þar af leiðandi sjálfsmorðstilraun 10 ára gamall. Sem móðir þessa drengs sem er þrátt fyrir allt mjög heilsteyptur, hæfileikaríkur og gáfaður einstaklingur. Sem móðir þessa drengs sem reyndi allt sem hún gat til að hjálpa sínum dreng í skólanum, allt frá því að vera bekkjarfulltrúi, stjórmarmeðlimur í foreldrafélaginu, funda með öllum fagmönnum sem fyrir fundust og gáfu sér tíma til að hlusta og upp í fundarsetur með stjórnendum í menntamálaráðuneytinu. Sem móðir þessa drengs sem fékk þrátt fyrir allt, engar úrbætur, enga aðstoð og í raun var drengnum vísað úr skólanum líka fyrir rest.

Sem móðir þessa drengs, sem mér þykir óendanlega vænt um og vil að hann njóti þess að geta gengið vel í lífinu til jafns á við aðra, bið ég fyrir því að einhver geti hjálpað þessum skyldunámsskólum landsins að finna lausnir sem virka, og standa með sínum nemendum fyrir alvöru. Ekki bara að varpa þeim burt, yfir á aðra og í óviðeigandi aðstæður. Minn drengur var með 8,9 og 10 í einkunnir fram að 10 ára bekk. Svo fór hann í sérdeild og hefur einungis náð upp í 6,5 síðan, flestar einkunnir langt þar fyrir neðan. Núna er hann að flosna upp úr skóla......

Já, víða er pottur brotinn, þrátt fyrir góðan vilja og yfirlýsingar, þá vantar alveg að fylgja því eftir oft á tíðum....

En til hamingju með einkunnirnar og árangurinn!!! Ég er viss um að þú verðir frábær í stjórnunar og kennslustarfi í skólum landsins. Þeir sem hreppa þig til starfa verða sannarlega stálheppnir!!

Bjarndís Helena Mitchell, 3.10.2007 kl. 09:38

3 identicon

Mikið er þetta góður punktur og ég hef oft hugsað það sama sem móðir drengs sem hefur einnig fengið þessa greiningu.  Það gleymist að hugsa í heildstæðum lausnum.  Ég hef rekið mig á það persónulega að það getur verið himinn og jörð á milli skóla, kennara og skólastjórnenda hvað það varðar hvernig tekið er á móti börnunum okkar.   

Til hamingju með góðan árangur í skólanum  

Soffía (IP-tala skráð) 3.10.2007 kl. 10:41

4 Smámynd: Laufey B Waage

Vá hvað jákvæðni, húmor og hlýlegt viðmót á erindi inn í grunnskóla landsins!! Ég mæli með þér sem yfirskólstjóra landsins. Mundi það ekki heita skólabiskup ?

Laufey B Waage, 3.10.2007 kl. 14:38

5 Smámynd: Garún

Sammála Laufey.....sendum menntamálaráðherra erindi...

Garún, 3.10.2007 kl. 16:56

6 identicon

Sem kennari verð ég að segja að það vantar úrræði fyrir mörg börn í skóla - hafið hins vegar í huga að í einum bekk geta verið allt að 30 nemendur þar sem eru allt að 5-6 nemendur sem eiga í ýmisskonar erfiðleikum - hvers eiga hinir 24-25 nemendurnir í bekknum að gjalda? Sveitarfélögin og menntamálayfirvöld þurfa að koma með skýrari stefnu hvernig þeir hyggjast halda einstaklingsmiðuðu námi til streitu þannig að allir fái kennslu og nám við hæfi.

Það er engan veginn lausn að senda nemendur heim hvað eftir annað, hvorki fyrir nemandann né kennarann. Ég á sjálf barn með greiningu og veit hvað þið eruð að tala um - en ég sé kennarahliðina í vinnunni og stundum langar mig til að labba út og koma ekki aftur - sérstaklega þegar maður heyrir 11 ára nemanda öskra á kennarann sinn "haltu kjafti helvítis hóran þín" - svona er skólalífið í dag!

ella (IP-tala skráð) 3.10.2007 kl. 20:51

7 Smámynd:  Íris Ásdísardóttir

Hef lengi verið ósátt við " Ekki þjónustuna " sem börnin okkar fá hér á landi. Það er árið 2007 og við þykjumst voða hipp og kúl í öllu sem heitir nýjungar og framfarir og við eru svakalega " inn " á landakortinu.......á sama tíma eru foreldrar að flýja landið sitt og barnsinns því hér er bara ekki hægt að fá hjálp. Það á að hjálpa foreldrum að hjálpa barninu sínu og það er að sjálfsögðu í hödum ríkisstjórnarinnar ekki kennara......þannig að Edda mín, drífðu þig á þing, þú færð mitt kjós !!! :-)

Íris Ásdísardóttir, 4.10.2007 kl. 00:10

8 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Ég styð þig í þetta djobb

Einar Bragi Bragason., 4.10.2007 kl. 23:53

9 Smámynd: Þóra I. Sigurjónsdóttir

Þú ert náttúrulega BARA frábær Edda

Takk fyrir að samþykkja bloggvinskapinn.

Þóra I. Sigurjónsdóttir, 5.10.2007 kl. 10:00

10 identicon

Við sem störfum í skólum landsins verðum oft vör við það að væntingar til skóla eru þær að þar fari fram bæði menntun barnanna okkar og lækning á hinum ýmsu kvillum sem hjrá suma unga Íslendinga í dag.  Þið leikarar sýnið okkur oft og túlkið veika einstaklinga en enginn reiknar með að þið ráðið við lækninguna líka.  Þar koma læknar að málinu.  Það hefur hvarflað að mér að kominn sé tími til að hafa lækni í fullu starfi á skólatíma inni í skólunum til að sinna hinum sjúku.  Kennarar kenni, læknar lækni og leikarar leiki.

En burtséð frá þessu þá ert þú bara frábær Edda og takk fyrir gamlar og góðar stundir í Vinnuskólanum forðum daga.

Sigrún Sighvatsdóttir (IP-tala skráð) 6.10.2007 kl. 13:52

11 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

Mjög margir vinir mínir eru kennarar og þeim finnst mörgum að ekki sé komið með nýjungar vegna þess að einginn veit hreinlega hvað skal gera. Það vantar sérkennara því vegna álags fara þeir í önnur störf og betur launuð.

Endapunkturinn er samt oftast sá að það vantar pening og þar sem börn eru, þykir ráðamönnum þjóðarinnar algjör óþarfi að setja einhvern pening í.

Svala Erlendsdóttir, 7.10.2007 kl. 14:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband